Í tilefni 20 ára afmælis Vegmóðs var gefið út rit.
Hér má sjá formála aðalritara:
Vegmóður er 20 ára! Fyrir 10 árum birtist á prenti afrek Vegmóðsfélaga gegnum fyrstu 10 árin. Núna á 20 ára afmælinu þótti tilheyra að sameina 10+10 árin í endurbættri útgáfu. Og hér sjáið þið þetta glæsta rit í allri sinni dýrð! Ekki hef ég fengið Nóbelsverðlaunin enn, þótt skrítið sé! Ég gefst ekki upp! Ég hlýt að fá þau næst! Í “göngufjarveru” minni vegna lappabrots, liðbandaslits, magaverkja og annars krankleika skráði (Guðrún) Fanney (Óskarsdóttir), vararitari Vegmóðs, allt sem Vegmóður afrekaði á þeim tíma. Ætti ég að setja ritið á markað í jólabókaflóðinu? Nei og þó “Uppgjör Vegmóðs” gæti orðið metsölurit! Sævar (Hilbertsson) tók af skarið: “Ég set þetta á tölvu og síðan látum við fjölfalda ritið.” Búið og basta! Ég lagði til að við græddum á ritinu og færum til Ástralíu! Nei annars! Verð afmælisritsins fer eftir útlögðum kostnaði við fjölföldun og bókband. Nú er ég komin í vandræði! Annaðhvort verður formálinn ævisagan eða hér kemur punkturinn yfir i-ið! Ég vel punktinn!
Skrifað 17. júní 1988,
Þorbjörg Hilbertsdóttir,
aðalritari Vegmóðs!
Our Family Walking Club
This section shares the warm and nostalgic history of our cherished walking club traditions.
The Founders
Trail Leaders
This member brings years of experience on the trail and a wealth of route knowledge.

The Archivist
Photo Historian
This member is known for organizing our photo gallery and capturing wonderful memories.

The Scribe
Log Keeper
This member specializes in maintaining the walk log detailing past routes and distances.

The Planner
Schedule Coordinator
This member excels in mapping out the upcoming walks calendar for everyone.


Our Family Walking Club Story
Welcome to Vegmóður, a warm archive dedicated to our cherished family walking club. Discover our journey, our favorite trails, and the memories we create together step by step.

